GÍTARGALDUR ← Til baka á Gítargaldur.is

Gítarstillirinn

Veldu hljóðfærið og sláðu á einn streng.

Tilbúið að stilla

Opnir strengir · Gítar

Smelltu á streng eða númer til að heyra tóninn.

Grænn hringur sýnir streng sem hefur náð réttum tóni.

Frávik frá tóninum sem heyrist

−50 cent0 cent+50 cent
← LægriHærri →
C2–B2

Blá ör sýnir tóninn. Númerahringir merkja opna strengi.

Virkjaðu hljóðnemann til að byrja.

Hljóðnemi
Hjálp við stillingu

Veldu hljóðfærið þitt. Gítarstillirinn er krómatískur og greinir alla tólf tónana. Opnir strengir hljóðfærisins eru merktir í tónstafrófinu með strengjanúmeri og áttund. Hálsmyndin sýnir strengjanúmer og tónheiti með áttund. Smelltu á streng á hálsmyndinni eða merktan tón í tónstafrófinu til að heyra viðmiðunartóninn.

Sláðu á einn opinn streng í einu. Nálin sýnir frávik frá næsta hálftóni. Grænt svæði þýðir ekki eitt og sér að strengurinn sé rétt stilltur. Tónheiti og áttund þurfa líka að passa við strenginn á hálsmyndinni. Sjötti strengur gítars á til dæmis að vera E2, ekki D♯2. Númerahringur verður grænn þegar réttur tónn í réttri áttund helst innan ±8 cent í 0,6 sekúndur. Merkingin helst meðan þú stillir aðra strengi og núllstillist þegar þú skiptir um hljóðfæri eða virkjar hljóðnemann aftur.

Miðað er við A4 = 440 Hz og mið-C = C4. Áttundarnúmerin sýna tónhæðina sem hljómar. Ukulele með lágu G þarf streng sem er ætlaður í þá stillingu.

Hljóðið er greint í tækinu þínu. Gítarstillirinn vistar ekki upptökur og sendir ekki hljóð á netþjón. Hljóðneminn stöðvast þegar þú ferð úr flipanum. Ýttu á „Stöðva hljóðnema“ til að slökkva án þess að yfirgefa síðuna. „Hætta við“ ógildir leyfisbeiðni í bið; vafrinn gæti áfram sýnt leyfisgluggann.

Píanó: Salamander Grand Piano — Alexander Holm · CC BY 3.0. Upptökum er breytt í tónhæð, styrk og lengd við spilun.